Blogg31.3.2009Rakel Anna GuðmundsdóttirRakel Anna Guðmundsdóttir er 1. árs í dag 31. mars 2009. Hún fæddist einhverstaðar eftir klukkan 22.00 hehe.. já já 5 börn og ég bara get ómögulega munað þetta allt saman! Eins gott að eiga þetta niðurskrifað þegar þarf nauðsynlega að grípa í það.. lol... Kannski ég geri að síðar í dag! Eníveis... hún var voða kát þegar hún vaknaði klukkan 07.10 í morgun! Emilía sem er sárlasin, staulaðist niður í þvottahús og dröslaði pakkanum hennar upp allar tröppurnar og mætti með inn í herbergið til hennar (að mömmunni óvitandi - því þetta er frekar þungur pakki fyrir 4 ára að dröslast með upp stiga)... En sú var kát þegar hún afhenti afmælisstelpunni pakkan og ekki var gleðin síðri á þeirri sem tók við pakkanum! Sunna Lind sá svo um sönginn og söng af sinni alkunnu snilld... nú halda litla veislu skal, því Rakel Anna á afmæli í dag, húrra, húrra húrrrrra..... Svo rifu þær utan af pakkanum og afmælisbarnið var sko heldur kátt með gjöfina og var ekki hægt að síta hana frá dótinu í rúman klukkutíma og ýtti hún bara Sunnu Lind frá þegar hún ætlaði að fara að taka leikföngin yfir! Já hún lætur ekki alltaf valta yfir sig þessi skvísa! Nú hér er mynd af stelpunni tekin í morgun, nývöknuð með eyrnarbólgu, hor og kvef ;) En gella samt! 31.3.2009Prjónað eins og vindurinn!Ég er algjörlega dottin í prjónana og prjóna nánast eins og enginn sé morgundagurinn Ég hef núna prjónað vesti á mig, sem er by the way gordjöss! Síðan prjónaði ég ullarsokka handa Sunnu Lind og hún er nánast alltaf í þeim, svo heyrist annaðslagið "ég elska úllasokka mína" já já pæjan er mjög happy með þetta allt saman. Nú Rakel Anna fékk líka nýja ullarsokka og svo er ég búin með annan sokkinn á Emilíu og þarf að finna tíma í að klára hinn, því miður vinnur tíminn ekki með áhuganum á þessu heimilinu þar sem hann er af mjög skornum skammti þessa dagana, sökum anna ;) En allt hefur sinn vitjunartíma og vonandi næ ég að komast í þetta við fyrsta tækifæri. Nú hér er mynd af ullarsokkunum hennar Sunnu Lindar. Garnið fékk ég í FK en það er líka hægt að versla það í RL og er það ódýrara þar. Svana snillingur kenndi mér svo að gera hælinn en tána gerði ég bara eftir uppskrift úr lopablaðinu þar sem hún var farin heim þegar kom að því að byrja að taka úr lol... Eníhú... hér eru sokkarnir, sætir ha? 22.3.2009Skálholt mars 2009Ég fór í Skálholtsferðina nú í mars og MEN hvað það var skemmtilegt. Flettingar í dag: 1 Gestir í dag: 1 Flettingar í gær: 1 Gestir í gær: 1 Samtals flettingar: 1504 Samtals gestir: 524 Tölur uppfærðar: 9.2.2010 15:16:38 |
Vafraðu umTenglar
Eldra efni
|